Fara í efni

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 10. apríl 2025

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 10. apríl 2025

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 10. apríl 2025. Uppgjör viðskipta fer fram 15. apríl 2025.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.610.000.000 á bilinu 3,57% - 3,74%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.820.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,65%. Útistandandi fyrir voru ISK 35.342.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 37.162.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 125.000.000 á bilinu 3,45% - 3,55%. Ákveðið var að afþakka öllum tilboðum. Heildarstærð flokksins er ISK 35.285.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000).