Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 11. september 2024

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 11. september 2024. Uppgjör viðskipta fer fram 16. september 2024.
Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.900.000.000 á bilinu 3,85% - 3,98%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 600.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,91%. Útistandandi fyrir voru ISK 29.902.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 30.502.600.000.
Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.770.000.000 á bilinu 3,40% - 3,48%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.370.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,45%. Útistandandi fyrir voru ISK 31.085.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 32.455.000.000.