Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 12. febrúar 2025

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 12. febrúar 2025. Uppgjör viðskipta fer fram 17. febrúar 2025.
Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 5.690.000.000 á bilinu 3,74% - 3,91%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.100.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,75%. Útistandandi fyrir voru ISK 33.212.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 34.312.600.000.
Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 700.000.000 á bilinu 3,36% - 3,40%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 300.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,36%. Útistandandi fyrir voru ISK 34.955.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 35.255.000.000.