Útgáfuáætlun fyrir árið 2024
![Útgáfuáætlun fyrir árið 2024](/static/news/73227112_10215433949625437_3917429646227931136_n.jpg)
Áætluð útgáfa skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga árið 2024 til fjármögnunar útlána er 24-29 milljarðar króna að markaðsvirði.
Áætlun þessi miðast við núverandi aðstæður á markaði. Verði breytingar á markaðsaðstæðum má reikna með að ofangreind áætlun geti breyst. Lánasjóður sveitarfélaga endurskoðar áætlanir sínar hálfsárslega eða oftar ef þörf krefur.
Útgáfudagatal verður gefið út síðar.